Brúðkaup

Ert brúðkaup framundan? Brúðkaupið er einn mikilvægasti dagur lífsins.

Við sérhæfum okkur í sérsniðnum jakkafötum fyrir brúðguma, svaramenn og brúðkaupsgesti. Með persónulegri þjónustu, vönduðum efnum og fullkomnu sniði tryggjum við að útlitið endurspegli tilefnið. Frá fyrstu mælingu til afhendingar er markmiðið okkar að þú gangir inn í stóra daginn með sjálfstraust.

Við veitum faglega og persónulega ráðgjöf fyrir stóra daginn. Hjá okkur er hægt að bóka tíma þar sem farið er yfir allt sem skiptir máli við val á brúðkaupsklæðnaði.

Við hvetjum viðskiptavini til að taka með sér vini, svaramenn eða fjölskyldumeðlimi í ráðgjöfina, enda er upplifunin bæði skemmtileg og eftirminnileg. Það á sérstaklega við þegar brúðgumi og svaramenn eða fleiri í brúðkaupinu vilja samræma útlitið og skapa góðan stíl fyrir stóra daginn.

Við mælum að sjálfsögðu með því að vera tímanlega til að skapa ekki óþarfa stress.

Bókaðu tíma í ráðgjöf hér.