Refund policy
Skilafrestur á sérsaumuðum vörum
Við viljum einnig vekja athygli á því að sérsniðnar vörur eru unnar sérstaklega fyrir hvern og einn viðskiptavin, samkvæmt hans óskum. Af þeim sökum er ekki mögulegt að skila eða skipta slíkum vörum, enda eru þær ekki endurseljanlegar. Við mælum því með að allar pantanir séu vandlega yfirfarnar áður en þær eru staðfestar.
Ef þú hefur spurningar varðandi afgreiðslutíma, efnisval eða annað sem tengist sérpöntunum, þá hvetjum við þig til að hafa samband – við svörum fúslega og leiðbeinum með ánægju.
Skilafrestur á tilbúnum vörum.
Við bjóðum viðskiptavinum upp á 14 daga skilafrest frá móttöku vörunnar, að því gefnu að hún sé í upprunalegu ástandi, ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Endurgreiðsla fer fram að lokinni skoðun og staðfestingu á að skilyrði séu uppfyllt.